Námskeið


Að halda námskeið er stór þáttur í starfsemi TMF Tölvumiðstöðvar. Flest námskeiðin eru ætluð fagfólki, foreldrum og öðrum áhugasömum. Sérsníðum einnig námskeið að þörfum tiltekinna hópa.

Á TMF eru námskeið  haldin í sal á 4 hæð að Háaleitisbraut 13  en einnig eru haldin námskeið út í skólum og stofnunum um land allt. Hægt er að óska eftir námskeiðum sniðnum að þörfum einstakra hópa og panta námskeið út á land.

Á hverju ári eru hönnuð ný námskeið í takt við strauma og stefnur hvers tíma. Við teljum það líka vera okkar hlutverk að benda á nýjungar og nýjar leiðir til að nýta búnað.

Mismunandi er hversu mörg námskeið eru í gangi á hverjum tíma. Hægt er að óska eftir tilteknu námskeiði lágmarks þátttakendur á námskeiði eru 5. Óska eftir námskeiði tölvupóstur á sigrun@tmf.is

Bendum á að hægt er að sækja um endurgreiðslur vegna námskeiða TMF hjá flestum stéttarfélögum.