Tjáskiptaforritið TD Snap Grunnnámskeið

TD Snap tjáskiptaforritið er öflugt tjáskiptaforrit á íslensku sem gefið hefur góða raun fyrir nemendur sem ekki tala eða þurfa stuðning við talað mál.

TD-Snap

Námskeiðið er grunnnámskeið þar sem farið verður í grunnstillingar forritsins, tengingu við MyTobii Dynavox auk þess sem fjallað verður um það sem skiptir máli þegar við notum forritið til tjáskipta.

Þátttakendur taki með tölvu með TD Snap uppsett. Hér er tengill til að velja ókeypis útgáfuna fyrir windows

https://www.mytobiidynavox.com/Support/SnapCoreFirst

Í lokin gefst þátttakendum kostur á að spyrja um það sem brennur á hjarta.

Kennarar
Hanna Rún Eiríksdóttir kennari og ráðgjafi í Klettaskóla

Hrönn Birgisdóttir iðjuþjálfi og sérfræðingur í velferðartækni hjá ÖMÍ
Sigrún Jóhannsdóttir talmeinafræðingur og framkvæmdarstjóri TMF Tölvumiðstöðvar


Námskeið

Ekkert námskeið í boði að svo stöddu.