iPad og úrval appa

Nams-h18


Í smáforritum sem bjóða upp á auðar síður til að setja inn myndir, myndbönd, teikningar, texta og tal eru möguleikar til sköpunar nánast ótakmarkaðir. Hægt er að búa til frásagnir, æfa lestur og ritun, búa til félagsfærnisögur, dagskrá, skilaboð, bækur tengt námi eða öðru, lítil ævintýri, málörvunarverkefni svo eitthvað sé nefnt og allt aðlagað að þörfum og áhuga hvers og eins.

Þátttakendur koma með iPad þar sem búið er hlaða inn nokkrum völdum öppum.  Nánanri upplýsingar um öppin eru sendar á þátttakendur.

Á námskeiðinu vinnum við saman í  öppunum, skiptumst á skoðunum og reynslu og miðlum góðum hugmyndum. Þátttakendur fá leiðbeiningar á íslensku með öppunum.


Minnum á að hægt er að sækja um endugreiðslu til stéttarfélaga vegna námskeiða hjá TMF.

Námskeið haldið að Háaleitisbraut 13, 4 hæð

Kennari: Sigrún Jóhannsdóttir, talmeinafræðingur