Að skrifa sig til læsis í leikskólanum

Leikur leikskólabarna með bókstafi og orð í tölvu

Allt sem til þarf í leikskólann er tölva með ritvinnsluforriti. Einnig gaman að vinna í Power Point eða sambærilegu forriti. Ekki þörf á nettengingu og tölvan má vera gömul! Nauðsynlegt að komast í prentara en þarf ekki að prenta í lit.

Einnig sýnt hvernig má nota iPad.

Námskeiðið byggir á kennsluaðferð Arne Trageton,  Å skrive seg til lesing - Að skrifa sig til læsis.  Að skrifa á lyklaborð er tæki til málörvunar og leggur grunn að aukinni lestrar- og ritgleði. Börnin vinna í pörum á lyklaborð, þau ýta á lyklana og kynnast þannig stöfunum á eigin forsendum.  Þau vinna með stafina og orð sem þau myndskreyta með eigin teikningum. Öll vinna með stafi og orð er í leik og barnið ræður för.
Forrit sem helst hafa verið notuð undanfarin ár með leikskólabörnum og í fyrstu bekkjum grunnskóla eru músarstýrð. Þá er smellt með músinni á fyrir fram ákveðna staði og lítið sem ekkert pláss er fyrir eigin sköpun. Forritin eru tilbúin og fullorðins-stýrð. Þegar áherslan er færð yfir á lyklaborðið og á ritvinnsluforrit er það barnið sjálft sem stjórnar ferðinni og forritinu.

  •  Á námskeiðinu er kynnt kennsluaðferð Arne Trageton fyrir leikskólann
  •  Kynntar verða ýmsar hugmyndir að verkefnum fyrir leikskólabörn.

Þátttakendur læra að búa til lifandi frásagnir og myndaalbúm í PowerPoint, með texta, innlesnu tali og myndum. Sýnd verða skapandi  smáforrit í  iPad þar sem unnið er með myndir og texta.

Markhópur námskeiðsins: starfsfólk leikskóla, foreldrar og aðrir áhugasamir.

Kennari Sigrún Jóhannsdóttir talmeinafræðingur

Hægt að óska eftir námskeiði. Lágmarksþáttaka eru fimm. Einnig hægt að fá námskeið út í skóla þar er eitt verð óháð fjölda. Netfang til að óska eftir námskeiði sigrun@tmf.is