iPad - Gagnlegur grunnur

Viltu læra betur á iPad? Læra allt um helstu sniðugu og gagnlegu leiðirnar til að nýta vélina sem best. Þá er þetta námskeiðið fyrir þig.


  • Á námskeiðinu verður farið í helstu aðgerðir vélarinnar og margar gagnlegar stillingar skoðaðar og góð ráð gefin.
  • Búnar til möppur og farið í skipulag appa í vélinni.
  • Helstu öppin sem fylgja skoðuð og sýnt hvernig nota má mörg þeirra á hugvitsamlegan hátt  í námi, leik og þjálfun.
  •  Myndir í iPad og skipulag mynda í myndasafni.
  • Vafrað í Safari  - þitt verkfæri á netinu.

Markhópur námskeiðsins: Fagfólk, foreldrar og aðrir sem vilja læra á iPad sem grunn fyrir skapandi vinnu.

Þátttakendur koma með iPad á námskeiðið.

Næstu námskeið:

Ekkert námskeið í boði að svo stöddu. Hægt að óska eftir námskeiði lágmarksfjöldi er fimm.
Bjóðum einnig að fara með námskeið út í skóla og stofnanir.

Minnum á að hægt er að sækja um endugreiðslu til stéttarfélaga vegna námskeiða hjá TMF.

Námskeið haldið að Háaleitisbraut 13, 4 hæð

Kennari: Sigrún Jóhannsdóttir, talmeinafræðingur

Það er hægt að óska eftir námskeiði á öðrum tíma. Lágmark 5 þátttakendur.
Bjóðum einnig upp á að halda námskeið í skólum og stofnunum.