iPad skapandi verkfæri í námi, leik og þjálfun

Grunn- og leikskólamiðað og fyrir sérkennslu og stuðning á öllum stigum.

  • iPad skapandi verkfæri í námi í leik.
  • Gagnlegustu og snjöllustu stillingarnar og leiðirnar skoðaðar.
  • iPad sem margmiðlunarverkfæri að skapa, skrásetja og miðla.
  • Kynning á völdum öppum og þau skoðuð og prófuð.
    Sérstök áhersla á öpp sem bjóða upp á að setja inn eigin myndir, myndbönd, texta og tal. 
  • Unnið saman í öppunum ýmis góð ráð gefin og kynntar margar hugmyndir um notkun appana.

Þátttakendur fá sendan lista yfir ókeypis öpp til að hlaða niður fyrir námskeiðið.

Markhópur námskeiðsins: Fagfólk, foreldrar og aðrir sem vilja kynna sér iPad sem skapandi verkfæri í námi grunn - og leikskólabarna. Hentar einnig fyrir þá sem starfa í sérkennslu og stuðningi við fólk á öllum aldri.

Þátttakendur koma með  iPad á námskeiðið.
Námsgögn og leiðbeiningar með öppum sem farið er í  fylgja

Kennari: Sigrún Jóhannsdóttir, talmeinafræðingur

Það er hægt að óska eftir námskeiði á öðrum tíma. Lágmark 5 þátttakendur.

Bjóðum einnig upp á að halda námskeið í skólum og stofnunum.

Dagsetning: Mánudagur 11. mars klukkan 13-16 SKRÁNING

Staðsetning: Háaleitisbraut 13, salur 4 hæð