iPad

iPad í starfi og frístundum

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem vilja efla þekkingu sína á möguleikum iPad vélarinnar í starfi og leik með einstaklingum sem þurfa stuðning. Einnig fyrir félagsmenn aðildarfélaga að TMF Tölvumiðstöð. Þ.e. allra félaga innan ÖBI og Þroskahjálpar sem vilja læra betur á iPad.

  • Á námskeiðinu verður farið í helstu aðgerðir í iPad og ýmsar gagnlegar stillingar skoðaðar.
  • Skoðuð verða nokkur öpp sem nýtast vel í starfi s.s. textavinnslu, glærugerð og skipulagningu.
  • Farið í myndir í iPad og skipulag mynda í myndasafninu.
  • Skoðuð verða nokkur frí öpp sem taka við myndum og sýnt hvernig hægt er að nota þau á margvíslegan hátt í frístundum og starfi.
  • Vafrað í Safari  - þitt verkfæri á netinu.

Næstu námskeið:

  • Ekkert námskeið í boði að svo stöddu. Hægt að óska eftir námskeiði lágmarksfjöldi er fimm.
    Bjóðum einnig að fara með námskeið út í skóla og stofnanir.

Minnum á að hægt er að sækja um endugreiðslu til stéttarfélaga ef að það á við vegna námskeiða hjá TMF.

Námskeið haldið að Háaleitisbraut 13, 4 hæð

Kennari: Sigrún Jóhannsdóttir

Það er hægt að óska eftir námskeiði á öðrum tíma. Lágmark 5 þátttakendur.