iPad í stuðningi og þjálfun

Skapandi verkfæri í stuðningi og þjálfun einstaklinga á öllum aldri

  • iPad skapandi verkfæri í þjálfun og leik.
  •  Farið sérstaklega í gagnlegar aðgengisstillingar í vélinni.
  • Smáforrit (öpp) skoðuð og prófuð sem nýtast í stuðningi og þjálfun. Sérstök áhersla lögð á smáforrit þar sem hægt er að setja inn eigin myndir, texta og tal.

    Unnið saman í smáforritum, ýmis góð ráð gefin og kynntar margar hugmyndir um notkun.
    Þátttakendur fá sendan lista yfir ókeypis öpp til að hlaða niður fyrir námskeiðið.

 Markhópur námskeiðsins: Fagfólk og aðrir sem vilja kynna sér iPad sem verkfæri í stuðningi og þjálfun einstaklinga á öllum aldri.

Þátttakendur koma með  iPad á námskeiðið.
Námsgögn og leiðbeiningar með öppum sem farið er í  fylgja.

Næstu námskeið:

  • Ekkert námskeið í boði að svo stöddu. Hægt að óska eftir námskeiði lágmarksfjöldi er fimm.
    Bjóðum einnig að fara með námskeið út í skóla og stofnanir.

Minnum á að hægt er að sækja um endugreiðslu til stéttarfélaga vegna námskeiða hjá TMF.

Námskeið haldið að Háaleitisbraut 13, 4 hæð

Kennari: Sigrún Jóhannsdóttir, talmeinafræðingur

Það er hægt að óska eftir námskeiði á öðrum tíma. Lágmark 5 þátttakendur.

Bjóðum einnig upp á að halda námskeið í skólum og stofnunum.