iPad og úrval smáforrita

Lokað fyrir skráningu

  • Staðsetning: TMF Tölvumiðstöð
  • Dagsetning: 3. október 2019
  • Tími: 14:00 - 16:00
  • Verð: 7.000 kr.
  • Bókunartímabil: 2. september 2019 - 2. október 2019
  • Nánar:

    iPad - myndir – texti - tal. Öppin Book Creator, 
             Keynote, Fotokalendern, LittleStory Creator og Story
             Creator. 

     

     

Í smáforritum sem bjóða upp á auðar síður til að setja inn myndir, myndbönd, teikningar, texta, tal með texta sem ljómar upp og hljóð eru möguleikar til sköpunar nánast ótakmarkaðir. Hægt er að búa til frásagnir, félagsfærnisögur, talandi myndaalbúm, bækur tengt námi eða öðru, lítil ævintýri, málörvunarverkefni svo eitthvað sé nefnt og allt aðlagað að þörfum og áhuga hvers og eins. Á námskeiðinu vinnum við saman í nokkrum smáforritum, skiptumst á skoðunum og reynslu og miðlum góðum hugmyndum. Sjá lista yfir smáforrit sem unnið er í á námskeiðinu undir Námskeið/iPad/iPad og úrval smáforrita. ATH Ef annar aðili á að greiða fyrir námskeið sem ekki gefur kost á að greiða námskeið fyrirfram (s.s sveitarfélög og stofnanir) þarf að senda tilkynningu um það til sigrun@tmf.is. Þá er sendur út greiðsluseðill eftir námskeið. Minnum á að hægt er að sækja um endugreiðslu til stéttarfélaga vegna námskeiða hjá TMF.

Lokað fyrir skráningu