Tækni í lestri og ritun
Námskeiðið er fyrir alla þá sem vilja nýta sér og/eða kynna sér möguleika tækni í lestri og ritun.
Á námskeiðinu er kynnt hvernig nemendur, kennarar og aðrir sem glíma
t.d. við lesblindu geta nýtt sér tækni.
Námskeiðsþættir:
- Hvað er talgervill og hvað felst í því að lesa með talgervli.
- Farið í talgervla forrit eins og IvonaReader og Mini Reader.
- Farið í ókeypis viðbótina Read Aloud í Chrome vafranum með íslenskum röddum Karl og Dóru.
- Farið í nýjar talgervlaraddir í Microsoft Edge vafranum og Microsoft forritum, Office 365.
- iPad, gagnlegar stillingar og lyklaborðið Gboard fyrir spjöld og snjallsíma.
- Símarómur talgervill fyrir íslensku á Android síma og spjaldtölvur.
- Raddinnsláttur og lyklaborð með spáritun í Google. Raddinnsláttur með Tiro tiro.is
- Skoðum iOS öppin Voice Dream Reader fyrir upplestur á íslensku og Voice Dream Skanner til að skanna inn íslenskan texta til að fá hann upplesinn.
Markhópur námskeiðsins: Kennarar og annað fagfólk, fólk með lesblindu, foreldrar og allir aðrir áhugasamir.
Þátttakendur taka gjarnan með á námskeiðið fartölvu og iPad. Þó ekki skilyrði. Hægt að fylgjast með en er gagnlegt að prófa sig áfram á staðnum.
Sendar verða upplýsingar um öpp sem má hlaða niður fyrir námskeiðið.
Minnum á að hægt er að sækja um endugreiðslu til stéttarfélaga vegna námskeiða hjá TMF.
Það er hægt að óska eftir námskeiði á öðrum tíma. Lágmark 5 þátttakendur.
Bjóðum einnig upp á að halda námskeið í skólum og stofnunum.
ATH Ef annar aðili á að greiða fyrir námskeið sem ekki gefur kost á að greiða námskeið fyrirfram eða með kreditkorti (sveitarfélög og stofnanir) er valið Greiðandi annar en þátttakandi og greiðsluleiðin millifærsla valin. Þá er sendur út greiðsluseðill eftir námskeið.