TMF leitar að verkefnastjóra
TMF Tölvumiðstöð sinnir ráðgjöf og fræðslu um stoðbúnað og
stafrænar lausnir sem gagnast geta fólki með fötlun eða skerðingar, bæði
gagnvart einstaklingum, fagaðilum og aðstandendum.
Um er að ræða starf sem felur í sér mjög fjölbreytt verkefni sem öll tengjast
fræðslu og ráðgjöf, bæði á netmiðlum, á námskeiðum og í einstaklingsráðgjöf.
Við leitum eftir einstaklingi sem
- Hefur góða almenna þekkingu á tölvutækni og stafrænum lausnum.
- Hefur reynslu af eða þekkingu á fötlun og skerðingum.
- Hefur reynslu af fræðslustarfsemi eða ráðgjöf.
- Hefur brennandi áhuga á því að auka færni og tækifæri fólks með fötlun.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, samskiptahæfni og skipulögð vinnubrögð eru nauðsynleg.
Starfið býður upp á sveigjanleika og möguleika á minna starfshlutfalli ef áhugi er fyrir því.
Umsóknarfrestur er 9. maí 2025 og umsóknir skulu sendar á rosa@obi.is